Vefsíðan byggir á Javascript ! vafrinn er með slökkt á því !!

Í spilun núna:
Næst:
Fótbolti.net
Sigurður Ragnar: KSÍ hefur fjárfest í Birnu Berg

29. Jan kl: 07:30Sigurður Ragnar: KSÍ hefur fjárfest í Birnu Berg

Eins og við sögðum frá í gær fékk markvörðurinn Birna Berg Haraldsdóttir þau skilaboð frá KSÍ í haust að hún yrði ekki valin í landslið í fótbolta á meðan hún leikur einnig handbolta. Hún glímir nú við erfið meiðsli og verður klár í slaginn aftur um áramótin og á þá eftir að gera upp við sig hvorri íþróttinni hún ætlar að einbeita sér að, eða báðum. Í ítarlegu viðtali um málið í dag útskýrir Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna ákvörðun sína í málinu en viðtalið má sjá hér að neðan.
Wenger: Oxlade-Chamberlain getur komist á EM 2012

29. Jan kl: 07:00Wenger: Oxlade-Chamberlain getur komist á EM 2012

Arsene Wenger stjóri Arsenal telur að hinn ungi og efnilegi Alex Oxlade-Chamberlain geti unnið sér inn sæti í enska landsliðshópnum sem fer á Evrópumótið í Póllandi og Úkraínu í sumar.
Gamalt myndband af Wright-Phillips að fá bolta í andlitið

29. Jan kl: 06:00Gamalt myndband af Wright-Phillips að fá bolta í andlitið

Gamalt myndband af Shaun Wright-Phillips að fá boltann í andlitið á æfingu með Manchester City var að koma inn á youtube. Wright-Phillips er þá að leika sér í markinu og þegar hann fær skot á sig þá fer það í stöngina og beint framan í hann. Í dag spilar Shaun Wright-Phillips með QPR í ensku úrvalsdeildinni. Myndbandið er hér að neðan, en það er frá 2009.
Ítalía: Leikir dagsins

29. Jan kl: 05:55Ítalía: Leikir dagsins

Átta leikir eru á dagskrá í ítölsku A-deildinni í dag en tveir leikir voru spilaðir í gær. Boltinn byrjar að rúlla klukkan 11:30 þegar Fiorentina á heimaleik gegn Siena en nokkrum tímum síðar hefjast svo fimm aðrir leikir þar sem Roma, Napoli, Inter og Palermo eru öll að spila. Korter fyrir átta hefjast svo síðustu tveir leikir dagsins þegar AC Milan á heimaleik gegn Cagliari og Lazio útileik gegn Chievo.
Guardian: Man City hafnaði að skipta á Carroll og Tevez

28. Jan kl: 23:40Guardian: Man City hafnaði að skipta á Carroll og Tevez

Breska dagblaðið The Guardian birtir heldur ótrúlega frétt á vefsíðu sinni þar sem þeir segja að Liverpool hafi reynt að skipta við Manchester City á þeim Andy Carroll og Carlos Tevez. Segja þeir að City hafi ekki tekið því rausnarlega tilboði.
Siglfirðingur.is
Siglufjarðarkirkja

28. Jan kl: 22:27Siglufjarðarkirkja


Barnastarf (Kirkjuskóli) verður í Siglufjarðarkirkju í fyrramálið. Það hefst kl. 11.15 og stendur til 12.45. Kertamessa verður svo annað kvöld, frá kl. 20.00-21.00.
Svipmyndir 4. viku ársins 2012

28. Jan kl: 18:11Svipmyndir 4. viku ársins 2012


Þessi vika, sem nú er brátt liðin, var norðanfólki dimm og fremur erfið. Á sunnudag, 22. janúar, var hláka, en mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag snjóaði linnulaust að heita má. Mest var ofankoman 25. janúar og féllu snjóflóð víða í kjölfarið, enda var þetta bleytuhríð. Síðan hefur verið rólegt veður og bjart. Frost var aldrei mikið.
Sólardagurinn

28. Jan kl: 17:21Sólardagurinn


Sólardagurinn langþráði er runninn upp hér í Siglufirði, eftir 74 daga rökkur. Alskýjað hefur þó verið og ekkert að sjá á himni annað. Eins og í fyrra. En það er í lagi. Nóg að vita, að sú gula skuli vera tekin að hækka flugið. Sólardagurinn var áður fyrr hafður 27. janúar, en þá baðaði sólin prestsetrið Hvanneyri geislum eftir langa fjarveru, en á einhverjum tímapunkti var ákveðið að miða framvegis við Ráðhústorg.
Bæjarlífspistill

28. Jan kl: 16:36Bæjarlífspistill


Morgunblaðið birtir reglulega pistla fréttaritara sinna, í þætti sem nefnist Úr bæjarlífinu. Er þar reynt að bregða upp myndum úr heimabyggð og því sem fólk úti um land hefur verið og er að fást við hverju sinni. Þetta á að vera stutt og hnitmiðað. Þann 4. janúar og 10. september 2011 var komið að Siglufirði. Og í dag.
Garðfuglahelgin

27. Jan kl: 23:27Garðfuglahelgin


„Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar verður 27.-30. janúar. Framkvæmd athugunarinnar er einföld. Það eina sem þátttakandi þarf að gera er að fylgjast með garði í einn klukkutíma einhvern þessara daga, skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir.” Þetta segir í tilkynningu sem barst á dögunum.
Siglo.is
Ljósmyndatæknin

28. Jan kl: 17:00Ljósmyndatæknin

Tækni á sviði ljósmyndunar og hreyfimyndatækni (video) hefur síðasta áratuginn farið hamförum, það er raunar vægt til orða tekið.
Sólardagurinn 28. janúar á Siglufirði

28. Jan kl: 09:00Sólardagurinn 28. janúar á Siglufirði

Siglfirðingar tóku forskot á sólardaginn í gær, drukku sólarkaffi og hámuðu í sig hinar sívinsælu pönnukökur frá Sjálfsbjörgu. Svo má endurtaka leikinn í dag ekki síst ef sólin nær að skína því það er dagurinn í dag sem í meira en hálfa öld hefur verið talinn fyrsti sólardagur.
Sungið á sólardaginn á Siglufirði

27. Jan kl: 15:30Sungið á sólardaginn á Siglufirði

Í tilefni af fyrsta sólardeginum sem er 28 janúar á Siglufirði, buðu siglfirsk leikskólabörn upp á söng í morgun framan við Sparisjóðinn.Þau voru þar með fóstrum sínum, þetta er árlegur viðburður á þessum degi og ekki síst í góðu veðri eins og er í dag logn og um frostmark.
Sólarpönnukökur hjá Sjálfsbjörg

27. Jan kl: 12:00Sólarpönnukökur hjá Sjálfsbjörg

Sjálfsbjargarfélagar á Siglufirði hafa í fjörtíu ár bakað og selt pönnukökur til fyrirtækja á sólardaginn sem er 28. janúar. Sólin sést á prestssetrinu á Hvanneyri 27. janúar en í bænum 28.
Mokstur hafinn á Siglufjarðarvegi

27. Jan kl: 09:00Mokstur hafinn á Siglufjarðarvegi

Snjómokstur er hafinn á Siglufjarðarvegi mörg og stór snjóflóð eru á ströndinni 4 til 5 metrar á hæð 40 til 60 metra löng og ekki ljóst hvenær vegurinn opnast.
Ólafsfjörður - 625.is
Skóla- og frístundaakstur fellur niður í dag

26. Jan kl: 08:13Skóla- og frístundaakstur fellur niður í dag

Skóla- og frístundaakstur fellur niður í dag, fimmtudaginn 26. janúar er fram kemur á heimasíðu Fjallabyggðar. Enda er þetta spurning hvort nokkur eigi að vera að ferðast á þessum tíma. Meðfylgjandi mynd er af vef vegagerðarinnar og sýnir færð á vegum um landið.
Fréttir á mbl.is
Jökulhlaup í Gígjukvísl

28. Jan kl: 23:11Jökulhlaup í Gígjukvísl

Vatnshæð og leiðni í Gígjukvísl á Skeiðarársandi hefur hækkað óvenju mikið frá því um hádegið í gær, föstudag. Vatnið í ánni er dökkt að lit og einnig fannst brennisteinslykt við brúna um 17 leytið í dag, að því er Veðurstofa Íslands segir.
Gríðarleg úrkoma

28. Jan kl: 22:12Gríðarleg úrkoma

Gríðarleg úrkoma er á Suðurlandi. Lögreglumaður sem mbl.is ræddi við í kvöld sagði að samfelld úrkoma væri á milli Hvolsvallar og Kirkjubæjarklausturs. Rignt hefði látlaust frá því um miðjan dag og væru vatnavextir í ám, m.a. undir Eyjafjöllum. Hann tekur þó fram að engin hætta sé á ferðum.
Þrefaldur pottur næst

28. Jan kl: 19:34Þrefaldur pottur næst

Enginn var með fimm tölur réttar í Lóttóútdrætti kvöldisins. Potturinn verður því þrefaldur næst. Einn hlaut hins vegar bónsuvinning að upphæð 245.000 kr. Tölur kvöldsins voru 3, 10, 22, 26 og 27. Bónustalan var 32.
Eins og eftir gott rifrildi

28. Jan kl: 18:14Eins og eftir gott rifrildi

Ánægja ríkir innan Samfylkingarinnar í kjölfar þess að tillaga um landsfund var dregin til baka á flokkstjórnarfundi í dag. Andrés Jónsson, einn flutningsmanna tillögunnar segir samstöðu hafa ríkt innan hópsins um að draga hana til baka. Að hans sögn hefur tilgangi tillögunnar verið náð. Nú er umræðan komin á fullt.
Sóttu slasaðan vélsleðamann

28. Jan kl: 17:51Sóttu slasaðan vélsleðamann

Björgunarsveit frá Hvammstanga var kölluð út á fjórða tímanum í dag þegar tilkynning barst um slasaðan vélsleðamann. Hafði hann ekið fram af snjóhengju í suðurhluta Vatnsnesfjalls fyrir ofan Hvammstanga.
Brotist inn í 10 bíla

28. Jan kl: 17:26Brotist inn í 10 bíla

Brotist var inn í 10 bifreiðar í miðborg Reykjavíkur í morgun. Að sögn lögreglu voru rúður brotnar og einhverjum munum stolið. Sex bifreiðanna voru við Bergstaðastræti en fjórar við Fjölnisveg.
Hljóta 400.000 kr. í styrk

28. Jan kl: 16:59Hljóta 400.000 kr. í styrk

Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Sirra (Sigrún Sigurðardóttir) myndlistarkonur hlutu í dag styrki úr styrktarsjóði Svavars Guðnasonar listmálara og Ástu Eiríksdóttur, eiginkonu hans. Úthlutunin fór fram í Listasafni Íslands og hljóðuðu styrkirnir upp á 400 þúsund krónur hvor.
Tillaga um landsfund dregin til baka

28. Jan kl: 15:19Tillaga um landsfund dregin til baka

Flutningsmenn tillögu um að halda skyldi landsfund Samfylkingarinnar á vormánuðum 2012 hafa ákveðið að falla frá tillögunni.
Enski boltinn á mbl.is
Brighton sló Newcastle út

28. Jan kl: 19:42Brighton sló Newcastle út

Strákarnir hans Gus Poyet í B-deildarliði Brighton gerðu sér lítið fyrir og slógu Newcastle úr leik í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar en liðin áttust við á heimavelli Brighton í kvöld.
Stoke og Bolton komust áfram

28. Jan kl: 17:02Stoke og Bolton komust áfram

Úrvalsdeildarliðin Stoke, Bolton og Norwich voru meðal þeirra liða sem komust áfram í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu en níu leikjum var að ljúka.
United seldi Diouf til Hannover

28. Jan kl: 15:43United seldi Diouf til Hannover

Þýska liðið Hannover gekk í dag frá kaupum á senegalska landsliðsmanninum Mame Biram Diouf frá Englandsmeisturum Manchester United. Samningur hans er til tveggja og hálfs árs.
Ferguson: Áttum þetta ekki skilið

28. Jan kl: 15:27Ferguson: Áttum þetta ekki skilið

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United var að vonum svekktur með niðurstöðuna á Anfield í dag en hans menn voru slegnir út af erkifjendunum í Liverpool í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar.
Dalglish: Sýndu mikla seiglu

28. Jan kl: 15:18Dalglish: Sýndu mikla seiglu

Kenny Dalglish knattspyrnustjóri Liverpool brosti breitt eftir sigur sinna manna gegn Manchester United í bikarnum í dag. Dalglish skammaði lærisveina sína eftir tapleikinn gegn Bolton fyrir viku síðan og þær skammir virðast hafa gert gott því liðið hefur nú á nokkrum dögum slegið bæði Manchester-liðin út í bikarnum, United í bikarnum og City í deildabikarnum.
Liverpool sló Manchester United út úr bikarnum

28. Jan kl: 14:34Liverpool sló Manchester United út úr bikarnum

Liverpool var að slá erkifjendur sína í liði Manchester United í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar. Dirk Kuyt tryggði Liverpool 2:1 sigur en hann skoraði sigurmarkið fimm mínútum fyrir leikslok. Liverpool hefur þar með í sömu vikunni slegið út bæði Manchester-liðin í bikarnum en liðið sló City út í deildabikarnum.
Gylfi á bekknum en Grétar ekki í hóp

28. Jan kl: 14:17Gylfi á bekknum en Grétar ekki í hóp

Bolton og Swansea eigast við í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar á Reebok vellinum í Bolton. Grétar Rafn Steinsson er ekki í leikmannahópnum og líklega vegna meiðsla. Gylfi Þór Sigurðsson er hins vegar í hópnum hjá Swansea og byrjar á bekknum.
Chelsea fagnaði sigri á Loftus Road

28. Jan kl: 13:58Chelsea fagnaði sigri á Loftus Road

Chelsea er komið í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir 1:0 sigur gegn QPR á Loftus Road í dag. Spænski landsliðsmaðurinn Juan Mata skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu sem þótti afar umdeildur dómur.
Íþróttir á mbl.is
María og Auðunn hlutu stigabikarana

28. Jan kl: 20:21María og Auðunn hlutu stigabikarana

Íslandsmeistaramót í bekkpressu fór fram á Akranesi í dag. Stigabikar kvenna hlaut María Guðsteinsdóttir, Ármanni, á nýju Íslandsmeti í -63,0 kg flokki kvenna. 105,5 kg. Stigabikar karla hlaut Auðunn Jónsson, Breiðablik, sem lyfti 267,5 kg í +120,0 kg flokki karla. Stigahæsta liðið varð Kraftlyftingadeild Gróttu.
Pétur og Marín Bikarmeistarar í glímu

28. Jan kl: 18:27Pétur og Marín Bikarmeistarar í glímu

Pétur Eyþórsson úr Ármanni og Marín Laufey Davíðsdóttir úr HSK sigruðu í dag í Bikarglímu Íslands.
Ásgeir skaut vel í Þýskalandi

28. Jan kl: 16:36Ásgeir skaut vel í Þýskalandi

Ásgeir Sigurgerisson úr Skotfélagi Reykjavíkur náði flottum árangri á sterku alþjóðlegu móti í Þýskalandi í dag.
Fyrsti sigur KA í blakinu

28. Jan kl: 15:55Fyrsti sigur KA í blakinu

KA-menn unnu sinn fyrsta leik í Mikasadeild karla í blaki í dag þegar þeir lögðu Þrótt úr Reykjavík 3-0 og í kvennadeildinni sótti Afturelding stigin austur til Þróttar í Neskaupsstað og vann 3-0.
Azarenka vann og er kominn í toppsæti heimslistans

28. Jan kl: 11:27Azarenka vann og er kominn í toppsæti heimslistans

Victoria Azarenka, 22 ára gömul stúlka frá Hvíta-Rússlandi, stóð uppi sem sigurvegari í einliðaleik kvenna á opna ástralska meistaramótinu í tennis í dag.
Falla metin í Höllinni?

28. Jan kl: 08:20Falla metin í Höllinni?

Frjálsíþróttafólk verður í eldlínunni í Laugardalshöllinni alla helgina en ÍR-ingar halda sitt árlega stórmót og er þetta í 16. sinn það er haldið. Mótið er langstærsta opna innanhússmótið frjálsum sem haldið er árlega hér á landi.Keppt er í aldursflokkum frá 8 ára og yngri upp í karla og kvennaflokk.
Dagný var hætt í handboltanum

28. Jan kl: 08:13Dagný var hætt í handboltanum

„Liðsfélagarnir eiga sinn þátt í því að ég fékk þessi verðlaun. Ég er með góða leikmenn við hliðina á mér og snjallan markmann fyrir aftan. Ég hefði aldrei fengið þessi verðlaun ef ég væri ekki í flottu liði, sagði landsliðskonan Dagný Skúladóttir úr Val af hógværð í samtali við Morgunblaðið í gær en hún var valin besti leikmaður umferða 1-9 í N1-deild kvenna í handknattleik.
Ásgeir fékk silfur í Þýskalandi

28. Jan kl: 08:05Ásgeir fékk silfur í Þýskalandi

Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur náði frábærum árangri í loftskammbyssukeppni á sterku alþjóðlegu móti í Þýskalandi í gær þegar hann vann til silfurverðlauna.
 

NÓTUR Á NETINU

Sheet Music Plus Featured Sale
   Search for